Stick that in your pipe and smoke ittt!

29.09.2007 13:10:06 / guddakh

Ææææ af því bara .......

Hérna eru nokkrir hlutir sem fara í taugarnar á mér .....

....... ónýtt bílastæði ( læriði að leggja fólk! )

........ smjatt

........ Stelpur sem eru að drepast úr gelgju

........ Umferðastíflur

........ Það eru bara 24 tímar í einum sólarhring

........ Svínastíuna inni hjá mér

........ Þriðjudaga

........ Freistingar

........ Ákveðnir kennarar

........ Að ég sé ekki milljónamæringur

......... Rigning og rok

......... Óþolinmæðina mína

......... Drama

......... Fólk


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 23:49:58 / guddakh

Ein önnur færslan

Bara fyrir þá sem vita það ekki, á ég mér ekkert líf 8| ............. ég er búin að hanga á photoshop núna frekar lengi að gera einhverja vitleysu. Ég er búin að vera að klippa hausa inn á frægar manneskjur og láta fólk inn á myndir með frægu fólki ................. ég skemmti mér konunglega við þetta :| ég er ekki viss hvort það sé gott eða vont, þetta er frekar vonlaust :lol: .................. ég er samt orðin frekar flínk í þessu .... þannig ef einhver vill láta photoshopa sig með einhverjum frægum einstakling endilega látið  mig vita ;) ég verð búin að þessu á nó tæm :haha:

Ég er ekki alveg viss hvernig fyrsti skóladagurinn lagst í mig :S ég er einhvernvegin ekki að ná því að ég er byrjuð aftur í skóla ....... ég nenni bara ekki að læra undir þessi ógeðslegu fög sem ég er í :whut: þetta er vibbi .......... ég er svona að spá í að vera ekkert að standa í þessari stærðfræði og gera eitthvað annað :$ skipta kannski á 4 ári í líffræði. Það rann bara upp fyrir mér að mig langar bara ekkert að læra meiri stærðfræði, hún er allvegana ekki ástæðan að manni hlakki til að fara í skólan á morgnana .... ææ, það er alltaf svo mikið vesen á mér :$

Ég sakna samt gamla bekkjarins míns ógeðslega mikið, NA bekkurinn var svo skemmtilegur og gott að vera í honum, maður þurfti ekki að leggja alveg eins mikið á sig ;) sem var rosalega þæginlegt, því akkurrat núna líður mér eins og verði sluggarinn í mínum bekk 8| , sko, ég nota meiri segi orðin sem ég lærði frá NA ........... ég vill reunion, NÚNA :!:

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 12:01:04 / guddakh

A bad hair day!

Ok, þið vitið alveg þetta gengur fyrir sig. Maður vaknar, fer kannski í sturtu horfir svo í spegilinn og ............... neiiiii, ekki í dag !

A bad hair day, ég hef alveg átt mér þó nokkuð marga svoleiðis daga, utan fyrir það að ég fékk alveg einn hrikalegan um daginn, ég var það pirrruð að ég lét hárið bara í hnút og spöng, en það ætlaði bara ekki að halda sér á sínum stað. Ég var að verða brjáluð 8|

Það skrítna var á þessum örlaga deigi, gerðist dálítið fyrir mig. Þó að hárið mitt væri eins og risastór lubbi þá var fólk frekar gott við mig. 3 manneskjur héldu svona skemmtilega hurð opni fyrir mig með bros á vör :D þannig að ég get ekki sagt að maður hafi verið alveg sokkin í sína eigin myglu.

Við eigum öll svona daga, þá daga sem við erum bara ekki til að vera innan um fólk og viljum skríða inn undir sæng og vera þar.

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 22:58:06 / guddakh

Ææææ, bara same old same old

Já, það er voða lítið búið að gerast hjá mér :|. Ég er eiginlega bara búin að vera vinna, og ekki búin að eyða mikið af laununum mínum ...... sweet ...... útskriftaferð here I come 8)

Ég var að telja núna um daginn og ég er búin að vinna í 5 vinnum í sumar og er að fara að byrja á sjöttu um helgina :$ .......... já bara svo þið vitið ég hef ekki verið rekin, svo að þið fáið engar ranghugmyndir :lol:

Maður er líka búin að taka upp marga ósiði þetta sumarið :^) ....... best bara að hætta áður en það gegnur og langt 8| ..........

Ég er að fara til NY í september ........ :haha: þið vitið ekki hvað ég hlakka til, ég er að deyja, ég ætla taka þetta á Paris Hilton stæl og láta gamala parið borga fyrir allt :P ........ hvað annað

Ég er að vinna í kringlunni núna .......... það er öðruvísi en ég hélt, ekkert vont en bara meira stress, og fólk getur verið mjög svona, hvað segir maður uppáþreyngjandi, en ég reyni alltaf að láta alla fara með bros á vör frá mér, þó það þýði að gera sitt allra besta að brosa í gegnum mygluna og vera með svona hýper bros á sér, en ég er ekki people person. En mér gengur svona allt í lagi, ég er ennþá að reyna að læra að brjóta fötin almennilega saman :S

Það er ekkert planað fyrir verslunarmannahelgina, ég bara vona að ég sé að fara að gera eitthvað, því ég nenni ekki að hanga heima og þá verður maður bara fastur fyrir saman sjónvarpið alla helgina að horfa á fólkið í fréttunum og tjöldinn þeirra eru að fjúka um í bakgrunninum ......... Afhverju fer fólk í útilegu um verslunarmannahelgina, maður verður blautur, þunnur, þreyttur, svangur, þyrstur og svo meira blautur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2007 14:48:55 / guddakh

Langt frí

Ég er búin að taka mér langt frí frá tölvu notkun, ég byrjaði bara í þessari viku að fara aftur í tölvvunna. Fyrsta vikan án þess að hafa tölvu var frekar erfið :S en svo þegar það voru búnar að líða 3 vikur var ég alveg hætt að hugsa um að fara í tölvunna. Ég er ekki búin að fara á msn í mánuð núna. Þetta frí var samt ekki eitthvað sem ég ákvað gera sjálf, það var útaf því að harði diskurinn í tölvunni hrundi ......... great 8| og allar myndirnar með honum. En bróðir minn náði tónlistinni minni úr tölvunni, thank god.´

Það er ekki mikið búið að gerast hjá mér síðan ég fór í sumarfrí. Ég byrjaði í Hrafnistu, hætti svo í hrafnistu vegna nokkura atvika sem ég fer ekki að segja frá hér :^)

Byrjaði svo í leikskóla í grafarvogi, voða kózý vinnustaður :D, svo er ég líka að vinna í leikbæ, megjör fun :lol:. Þú getur sagt það að vinna með börnum sé besta getnaðavörnin, ég er engan vegin tilbúin að eignast svona lítið kríli, þó að þau sé ótrúlega sæt og algerir snillingar.

Svo er ég kannski að fara til dk í sumar ;) það verður sko gaman. Og svo kannski til NY í haust

En ég var að fatta að það er bara 1,5 mánuður í skólan, kræst .............. :(

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 19:25:44 / guddakh

Leiðinleg færsla

Ég nenni í alvöru ekki að blogga, svona eru seinustu dagarnir búnir að ganga hjá mér ..... ég nenni ekki :|

Ég er svo ótúlega þreytt og er þess vegna að fara að sofa :( maður verður að vera fresh á fyrsta vinnudeginum :lol:

Búin að vera í 4 daga sumarfríi, örugglega eina sumarfríið sem ég fæ í sumar :|

Ætla að reyna að gera eitthvað skemmtilegt í sumar, sem er ólíklegt ..... en allt getur gerst ..... útilega, sumó og fleiri hugmyndir komnar ;)

Ætla að reyna, bara að reyna að byggja upp eitthvað tan í sumar 8) ósköp viss um að ég eigi þá eftir að líta út eins og tómatur/gulrót með freknur :( eða ég hald bara mínu Mjallhvítar þema yfir sumarið, veit aldrei ?

Ætla að reyna að minnka sjónvarps og tölvu gláp í sumar ..... ekki mjög líklegt að það eigi eftir að heppnast, en maður getur alltaf reynt :$

Ég nenni þessu ekki, farin að sofa :!:

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 17:31:36 / guddakh

Myndir

Það eru komnar myndir úr Njáluferðinni sem við fórum í síðastliðin þriðjudag.

Enjoy!!!!! 


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 10:58:39 / guddakh

Endajaxlataka! (endurbætt)

Á föstudaginn fór ég í endajaxlatöku :|

Dagurinn byrjaði með því að Sóley kom að sækja mig, því hefði ekki getað keyrt heim frá tannlækninum. Eftir að hafa faið í 2 tíma (pointless) kom pabbi að sækja mig kl svona 10:15 á þessum rosalega flotta græna bíl sem lyktaði eins og harðfiskur...... jummmí :S.

Við ætluðum að fara á salatbarinn, en hann var ekki opnaður. Þannig að við fórum frekar á subway, Subbu subway. Það var seinasta máltíðin mín :!:, ég fékk mér 12" bát (flipp) og ég hafði svona 15 mín til að borða hann.

Eftir að hafa troðið nánast bátinum í mig leið mér ekkert rosalega vel :|. Svo fór ég upp í tannlæknastofu, þar sem ég fékk að tannbursta subway bátinn úr tönnunum mínum :|.

Svo kl 11:10 fór ég inn í herbergið, vá ég var svo stressuð, ég titraði, mig langði bara til hafa mömmu hjá mér! ;). En ég sast niður og tannlæknirinn byrjaði eitthvað að gramsa í munninum mínum. Svo leit hann eitthvað upp og sagði við hjúkkuna (veit ekki hvað þær eru kallaðar) að ná í sykur??? What? Ástæðan fyrir því var að ég titraði svo mikið. Ég vissi ekki að ég titraði Svona mikið, en nei, ég leit á höndina mína og það væri hægt að mæla hana á richter skala 8| ... lol, talandi um það að hugrekkið hafi flogið út um gluggan.

Svo kom konan með djús (hjálðaði :$). Svo fékk ég þessi frægu sjónvarpsgleraugu sem ég er alltaf að tala um og fékk auðvitað að horfa á friends. Eftir það sé ég risastóra sprautu á leiðinni upp í munninn á mér ..... :cry: ..... Læknirinn sagði að deyfinginn sé vesti hlutin af aðgerðinni...... jehh right :$. Hann var að sprauta mig með þessu ógeðslega blá flikki í svona 15 mín, í alla staði kinnarinar og kjálkans til að reyna finna taugar :!:. Fann samt ekki rosamikið fyrir sprautunni. Mér er alveg sama að láta sprauta mið, en upp í munninum ...... nei!

Svo byrjaði ballið, fyrst var komið með eitthvað tæki sem þrýsti á tönnina til að losa hana eða eitthvað, svo byrjaði hann að jaga og jaga og jaga tönnina, með risastórum töngum, eftir svona 10 mín kom hægri jaxlinn út, ég fann ekkert fyrir því.

Vinstri jaxlin var aðeins erfiðari, tönninn var undir hinni tönninni 8| og það þurfti að bora í beinið og í hina tönnina til að ná jaxlinum út :( ... hjálp!. Þannig í svona 30 mín heyrði ég þetta ógeðslega bor hljóð. Svo þegar það er búið ætlar hann að toga hana upp úr. Honum tekst það ekki með risastórutönginni þannig að hann kemur með töng á stærð við grilltöng 8| (ég verð bara að segja ykkur að ég var hætt að horfa á friends fyrir löngu og hafði lokuð augun næstum allan tíman, ég veit samt að Bruce Willis lék í þættinum :haha:), ekkert gekk , þannig að hann byrjaði aftur að bora :|. Eftir það náðist hún loksins.

Ég held að það versta við þetta var ,,tannlæknahjúkkan" hún var með þetta sog tæki til að hreinsa í kringum tönnina að því að læknirinn þurfti að skera til að ná í vinstri tönnina, þannig að mér blæddi auðvitað í munnin. Hún var stanlaust að hreyfa þetta sog dót, ok?, annaðhvort var hún nýbyrjuð .... eða Ógeðslega harðhent, því hún var alltaf að troða helv.. tækinu niður í hálsin á mér :S:$ .... hvað er að !!!!!!! þannig að alla aðgerðina var ég að kúgast á þessu tæki og þá hætti auðvitað læknirinn til að spurja mig ef það sé ekki allt í lagi .......... og það eina sem ég get sagt er ...... aaaaaaaaaaaa .................... vá ég var að verða brjáluð :evil:

Svo þurfti bara að sauma vinstra megin, sem tók furðulega langan tíma. Svo lét læknirinn grisjur munninn. Ég leit út eins og gaurinn í Godfather með bómullinn upp í sér ...... flott á því ;).

Svo kem ég heim í ógeðslegum sársauka. Fæ parasedamol eða eitthvað álíka, það var ekki farið að virka eftir klukkutíma og ég í ógeðslegum sársauka þannig að ég skelti í mig hálfri parkótín forte ........ það Virkaði! :D. Svo kom pabbi með venjulegt parkóntín. Þannig að ég var uppdópuð að horfa á stranger than fiction og slefandi á kælipokan minn sem fyrir vinstri kinnina. Næs! bara klassi.

Núna lít ég út eins og hamstur sem er búin að troða öllum matinum sínum í vinstri kinnina 8|. Tannlæknirinn gerði þetta mjög vel, það er ekki honum að kenna að tannlæknar séu ekki uppáhaldsfólkið mitt í heiminum.

Ég held að lagið ,,because I got hi,, eigi mjög vel við núna. Ég hef ekkert gert alla helgina :haha: nema liggja í sófanaum og jappla á parkódíni. Ég á að taka 7 á dag, mér finnst það nú dálítið extreme og fé mér svona 4-5 á dag ....... en þær virka :haha:


» 12 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 00:55:38 / guddakh

11.03.07

Sæl og blessuð.

Það er nú mikið búið að gerast þessar 2 vikur hjá mér. Ég fór í þessa skauta á þarseinasta föstudag, ég verð nú bara að segja að ég er betri á skautum en ég hélt, en ég var samt með svona gamlamenna/lúða grind fyrir jafnvægi. Voða skemmtilegt að fara á 1 km/klst á svellinu meðan allir í kringum mann þjóta fram hjá manni :S.

Svo kom helgin sem ég man ekki hvað ég eyddi í akkurat núna, var ég kannski veik ? vá hvað ég er kölkuð

Eftir skóla á föstudagin fórum við Hildur að kaupa gjöf handa henni Tinnu. Ekki sniðug hugmynd að setja okkur saman að kaupa gjöf, tvær óákveðnustu manneskjur sem til eru í heiminum að finna gjöf saman er ekki góð blanda, vá við vorum í 3 og 1/2 tíma í kringluni, þetta var brútal, ég fann ekki fyrir fótunum mínum.

En allavegan var ég í afmæli hjá henni Tinnu R. um föstudagskvöldið, það var æðilegt fjör, dönsuðum og dönsuðum, og ótrúlega góður matur. Ég fór heim frekar snemma út af veðrinu, það var byrjað að snjóa um 9 leitið, sem var skrítið því á seinasta ári byrjaði líka að snjóa á afmælinu hennar Tinnu :!:

Það besta við þessa viku var það að ég fékk fullt að nýjum fötum, og skóm og skarti. Ég er svo ánægð ;), langt síðan ég hef farið og svona búðarráp.

En vá hvað ég er ekki að fíla veðrið úti. Var vorið ekki að koma ? ÉG HATA SNJÓ !!!!!

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 19:22:54 / guddakh

Bloggerí

Sæl.......  Ég hef ekki bloggað í smá tíma og ákvað bara að skella einhverju hérna á síðuna.

Það er nú ekki mikið búið að gerast hjá mér.

Ég fór í 2 vidiokvöld seinustu helgi, voða gaman, ég var samt einum of þreytt á föstudagskvöldinu og var því eiginlega alveg að sofna. Ástæðan fyrir því er að þegar ég ætlaði að fara heim, að sofa þá, þá var þessu huuuggeee trukkur sem blokkaði götuna mína alveg, þannig að ég komst ekki heim :|, ég var svo pirruð, vá. En ég hrindi bara í hana Ágústu mína og hún leifði mér að vera hjá sér í svona 2 tíma þanngað til að bíllinn hafði farið í burtu. Ég er svona nokkuð vegin viss um það að ég hafi eyðilaggt daginn hennar Ágústu og Andreu saman, þannig að ég biðst bara fyrirgefningar á því ;).

En á föstudaginn fór ég svo seinna um kvöldið til hennar Ágústu í vidiokvöldið, allar stelpurnar að drepast úr hungri, garnagaul áááiii, við þurftum að bíða í 75 mín eftir pizzunum okkar úr Dominos. Þegar pizzunar komu þá réðumst við á þær eins og úlfar, og klárðum næstum alla pizzunar neim 4 sneiðar. Svo horfðum við á Silvia Night show, ekkert spes, og svo á Notebook, sem er með sætasta leikara í sem til er. Við vorum að blóta leikkonunum og dæma hana, við vorum bara smá afbrýðisamar :$. Svo töluðum við bara og höfðum það kózý.

Á laugardaginn var vidiokvöld hjá henni Tinnu. Byrjaði með því að reyna að ákveða hvar við ætluðum að borða sem tók svona 45 mín, garangaul aftur áááii. Við skelltum okkur á Búlluna, nammi, fengum meiri segja fría bernhardssósu (ekki viss hvernig það er skrifað) og tókum upp á því að seigja annaðhvort lol, rofl eða flipp, gaman. Svo fórum við og horfðum á evróvision, gaman gaman, vorum dáltíð hissar með úrslitinn.  Svo horfðum við á Dreamgrils, sem var bara þó nokkuð góð mynd, dálítið löng. Þegar mydnin var búin komu Axel og 2 vinir hans í stutta heimsókn og þegar þeir voru farnir var klukkan orðin dálítið seint þannig að afganurinn að MELROSE seklltu sér bara heim.

En á morgun er ég að fara á skauta, skemmtileg sjón, það er eins gott að ég sé ekki sú eina sem kann ekki á skauta :!:

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 15:12:52 / guddakh

! Tjarnadagar !

Jæja í næstu viku eru tjarnadagar og árshátíðin, sem ég er búin að bíða svo lengi eftir.

Maður fær alltaf að velja sér eitthvað að gera yfir tjarnadagana.
Ég valdi, umm...., keilu og bíó og svo auðvitað keilu og bíó. Ha ha ha, einhæft :lol:. Ég bara nenni ekki að vera að fara á jökull fyrir 6000 KR,  það er svo mikil peningur :S. Ég gæti farið upp á jökul í jöklaferð nánast ókeypis.
Þannig að ég er löt nískupúki :D. Nei, ég er bara ekki að fara að eyða alveg svona miklu í tjarnardaganna, maður þarf nú að kaupa margt annað líka fyrir árshátíðana ;).

Ég hefði nú líka getað farið í góðgerðarpakkan, sem kostaði ekkert, og styrkt krabbameinssjúk börn :!:, en ég þá þarf maður að vinna í hagkaup eða bónus eða eitthvað álíka, og ég hef unnið í svona matvöruverlunum, og ég seigi bara NEI TAKK.
En vá hvað ég hlakka til, þessi vika á eftir að vera frábær.

Ps. ég er með teknólag á heilanum ,,put your hands up for Detroit,, 8|, ógó skemmtó.


 

» 13 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 19:53:23 / guddakh

Skólin

Ég er hekd að kennaranir í skólanum mínum séu ekki alveg vissir á því að erum ekki bara í tímum hjá þeim, við erum í fleiri tímum og við eigum okkur líf.
Ástæðan fyrir því að ég tek þetta upp er út af því að heimavinnan undanfarið eru búin að vera alveg rosaleg.

Ég fer í skólan, læri allan dagin, fæ kannski 1 eyðu ef ég er heppin, kem heim kl hálf 5 fæ svona hálf tíma til að slappa af og svo aftur þarf maður að fara læra til kl 12-1 það er ekkert gaman að vera hálf sofandi í öllum fyrstu tímunum sínum að því að maður er kannski bara búin að fá 5-6 tíma svefn 8|.

Eins og í dag, dagurinn ætlaði bara aldrei að vera búin, ég leit á klukkuna svona 10 sinnum í stærðfræði og mínútu örin ætlaði bara aldrei að hreifast, alltaf 14:01, 14:01, 14:01, 14:02. Svo fattaði ég það að ég átti eftir að fara í 2-faldan sálfræðitíma :( .

Mér finnst dagarnir allt of langir, þetta er aðeins búið að breitast frá því að maður var í 4 eða 5 bekk alltaf komin heim kl 13 eða 14, og þá átti maður allan daginn eftir.

The good old days :$
 

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 16:08:50 / guddakh

Bara að segja Hæ

Hæ :D, ég er ekki búin að blogga dálítið lengi. Það hefur nú ekki mikið gerst hjá mér þessa viku, nema það að ég er búin að festa mig 2-sinnum í snjó 8), ég er snillingur í að festa mig, og það bætir ekki að ég er ekki á besta bíl fyrir þetta veður.
Ég er búin að fara í rúbý með vinkonunum og bekkjarfélögum, skemmtilegt, algerir murtar ;).



Við erum að gera svo yndislegt verkefni í jarðfærði, Flokka Steina, vá hvað það er gaman 8| eða ekki.
Ég er að verða brjáluð, þetta eru steinar, mér er alveg sama hvað þeir heita, ekki eins og ég þurfi að muna nöfnin á þeim, eins og Dólerít, Gabbró, Ankaramít, Rýólít og Granófýr ég á aldrei eftir að þurfa að nota þessa þekkingu aftur, nema ég fari í viltu vinna milljón eða meistarinn, sem er ekki líklegt ;)



Ætla bara að skila kveðju til hennar Fanneyjar, sem á afmæli í dag, orðin 18, sjálfráða :lol:, Til hamingju með afmælið



» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 19:17:17 / guddakh

*Jólafríið*

Blessuð :D ég hef ekki bloggað almennilega í langan tíma.
Það er ekki mikið búið að gerast hjá mér, kláraði prófin og fór loksins í jólafrí sem ég hafði beðið eftir svo lengi. Ég fékk samt ekki það mikla hvíld, ég varð að redda jólagjöfum, sem er örugglega mest stressandi hlutur sem til er, ég er hræðilega lengi að ákveða hvað á að gefa öllum, og svo er ég alltaf að hugsa um hvort manneskjan verði ánægð með þetta, og kaupi svo eitthvað annað handa henni og er þannig búin að eyða miklu meiri pening en ég ætlaði mér upphaflega
En svona 3 dögum fyrir jól hætti ég bara að stressa mig, hvað með það að maður gleymi einhverju, ekki eins og það sé eitthvað heilagt að klára allt fyrir jólin.


Svo er maður búin að vera í jólastússi, fara í boð og hitta fjölskylduna, sem er stundum er dálítið erfit, því að ég er akkurrat í miðjunni í aldurhópnum, annaðhvort eru allir 23 og eldri eða 11 og yngri, hmmmm ekki voða mikið af möguleikum. Ég ætla að bara þakka henni frænku minni Önnu fyrir að vera til, annars myndi ég ekki geta staðið í þessu að mæta í þessi boð :lol:.

Gamlárskvöld var öðruvísi, var bara heima, jejjj :$, og við fengum hátíðarkjúkling, sem er breyting síðan í síðustu 17 ár, já því ég hef alltaf fengið svið á gamlárskvöld, mmm 8|, kjúklingurinn var barta mjög góður en samt saknaði ég þess að fá svið, hvað er að mér 8|

Seinustu dagarnir í jólafríinu hafa verið letidagar / útsöludagar annhvort fer í bæin að kaupa föt eða geri ekki neitt, sem ég er búin að sakna líka. Bara vera heima, sofa til 2 og horfa á gamlar myndir.

Ég á að mæta í skólan á morgun :whut: það eina sem á eftir að koma mér í skólan er það að þetta verður bara einn dagur og svo aftur helgafrí.

ps. ég HATA stundaskrána mína
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 00:36:49 / guddakh

Bull

Vissu þið að það er hægt að skilja orð ef maður sér fyrsta saftin og seinasta safinn jafnvel þótt að allir stafirnir í miðjunni er í rugli.

Hnan Ptuér ælatði að fraa með vnuim snuím á ehviernja semmkitelga bmóyínd ?

Vá ég hef alltof lítið að gera :$

ps. ég fann ekki upp á þessu sjálf :!:
 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Klukkan
Leitarbox